Fréttayfirlit 22. apríl 2024

Aðalfundur SOS Barnaþorpanna 2024

Aðalfundur SOS Barnaþorpanna 2024

Boðað er til aðalfundar SOS Barnaþorpanna mánudaginn 13. maí kl.17:30 í safnaðarheimili Kópavogskirkju, Hábraut 1a (gegnt Gerðasafni). Rétt til setu á aðalfundi eru skráðir aðildarfélagar í samtökunum. Í fjórðu grein samþykkta SOS segir:

Til þess að fé­lagi geti nýtt fé­lags­leg rétt­indi sín á að­al­fundi skal hann skrá sig á fund­inn með sann­an­leg­um hætti eigi síð­ar en sól­ar­hring fyr­ir boðað­an að­al­fund og vera í skil­um með fé­lags­gjald.

Vinsamlegast skráið ykkur því á fundinn með því að senda tölvupóst á sos@sos.is eða með símtali á skrifstofuna, s. 5642910.

Dagskrá aðalfundarins er þannig:

  1. Kosning fundarstjóra og -ritara
  2. Skýrsla stjórnar
  3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
  4. Lausn stjórnar og annarra ábyrgða
  5. Kosning stjórnar og varamanns
  6. Kosning endurskoðanda
  7. Ákvörðun um breytingar á samþykktum
  8. Ákvörðun félagsgjalds
  9. Önnur mál

Varðandi lið 5

Fram­boð­um til stjórn­ar skal skil­að inn til skrif­stofu sam­tak­anna eigi síð­ar en viku fyr­ir boðaðan að­al­fund, þ.e. 6. maí. Eigi tilnefningarnefnd að geta tekið afstöðu til framboða þurfa þau þó að berast samtökunum í síðasta lagi tveimur vikum fyrir aðalfund, þ.e. 29. apríl. Framboð skulu send á netfangið frambod@sos.is ásamt stuttu kynningarbréfi þar sem kemur fram stutt ágrip og ástæður framboðs.

Kosið verður um sæti tveggja stjórnarmanna til þriggja ára og eins varamanns til eins árs. Tilnefningarnefnd mun leggja tillögu sína fyrir fundinn að fulltrúum í þessi sæti.

Með góðri kveðju
Starfsfólk SOS Barnaþorpanna

Nýlegar fréttir

Ingibjörg og Anna Bjarney kjörnar í stjórn SOS
15. maí 2024 Almennar fréttir

Ingibjörg og Anna Bjarney kjörnar í stjórn SOS

Aðalfundur SOS Barnaþorpanna á Íslandi var haldinn mánudaginn 13. maí og urðu þá breytingar á stjórn samtakanna. Ingibjörg E. Garðarsdóttir og Anna Bjarney Sigurðardóttir voru kjörnar í stjórnina til ...

SOS eru einu samtökin eftir á Gaza sem taka að sér fylgdarlaus börn
14. maí 2024 Almennar fréttir

SOS eru einu samtökin eftir á Gaza sem taka að sér fylgdarlaus börn

Ástandið á Gaza er sérstaklega viðkvæmt núna og SOS Barnaþorpin eru einu hjálparsamtökin eftir á svæðinu sem taka að sér fylgdarlaus börn. Þessi frétt er uppfærð reglulega með nýjustu fréttum frá SOS ...