Úr sárafátækt í fyrirtækjarekstur
Þetta er hún Esther, einhver harðduglegasta kona í Ngabu í Malaví og þó víðar væri leitað. Fyrir nokkrum árum átti Esther ekki fyrir salti í grautinn og gat ekki séð fyrir börnunum sínum. Starfsfólki SOS Barnaþorpanna á svæðinu var gert viðvart um bága stöðu Estherar og barna hennar og var henni í framhaldinu boðið í fjölskyldueflingu SOS.
Lærði logsuðu
Þetta tækifæri greip Esther fegins hendi og það varð ljóst frá upphafi að hún ætlaði sér ekki að lifa í sárafátækt og láta börnin líða fyrir það. Með mikilli vinnu og eljusemi nýtti Esther sér alla þá aðstoð sem fjölskylduefling SOS býður upp á svo barnafjölskyldur geti staðið á eigin fótum. Hún hlaut þjálfun í logsuðu og smíði og stofnaði eigið fyrirtæki. Hún útskrifaðist úr fjölskyldueflingunni árið 2019 og í dag er líf hennar og barnanna gerólíkt því sem áður var.
Reksturinn gekk svo vel hjá Esther að hún opnaði fleiri fyrirtæki. Nú á hún einnig og rekur saumastofu og matvöruverslun og þénar nægar tekjur til að sjá fyrir allri fjölskyldunni og senda börnin í skóla. Við erum svo ótrúlega stolt af Ester og það ættu allir að taka sér hana til fyrirmyndar.
Íslensk fjölskylduefling í Ngabu
Saga Estherar tengist okkur Íslendingum á ánægjulegan hátt. SOS Barnaþorpin á Íslandi fjármagna nefnilega fjölskyldueflingu í nágrenni Estherer í Ngabu í Malaví. Verkefnið nær beint til 1500 barna og ungmenna í 400 fjölskyldum sem fá ekki grunnþörfum sínum mætt vegna bágra aðstæðna foreldra þeirra eða forráðamanna.
Fjölskyldurnar fá aðstoð í formi menntunar, heilsugæslu, ráðgjafar, barnagæslu og annarra þátta sem hjálpa þeim að yfirstíga erfiðleika og lifa betra lífi sem fjölskylda. Foreldrar fá aðstoð til að afla sér tekna og meðal úrræða eru vaxtalaus smálán og samvinna samfélagshópa.
Fjölskyldueflingin okkar í Malaví er styrkt af Utanríkisráðuneytinu og SOS-fjölskylduvinum.
SOS fjölskylduvinur
SOS fjölskylduvinur
SOS-fjölskylduvinir styrkja fjölskyldueflingu SOS. Sem SOS-fjölskylduvinur kemurðu í veg fyrir að börn verði vanrækt og yfirgefin. Í fjölskyldueflingu SOS tökum við fyrstu skrefin með fjölskyldum út úr sárafátækt svo þær getið staðið á eigin fótum og veitt börnunum bjarta framtíð. Þú ákveður styrktarupphæðina og færð reglulega uppýsingapóst um verkefnin sem við fjármögnum.