SOS sögur 29.mars 2019

Sér eftir að hafa gengið í skrokk á 11 ára syni sínum

Sér eftir að hafa gengið í skrokk á 11 ára syni sínum

Samband feðganna Mirza* (60 ára) og Haris* (14 ára) hefur verið stormasamt í nokkur ár og föðurnum t.d. verið stungið í steininn fyrir að leggja hendur á strákinn. Mirza missti tímabundið forræði yfir Haris vegna heimilisofbeldis en fyrir tilstilli fjölskyldueflingar SOS Barnaþorpanna í Sarajevó í Bosníu og Hersegóvínu eru feðgarnir sameinaðir á ný og mun hamingjusamari.

Kunni ekki að vera einstæður faðir

Mirza og fyrrverandi eiginkona hans skildu þegar Haris var ungabarn og hann fékk forræði yfir syninum. „Ég þurfti að læra frá byrjun allt um hvernig á að ala upp barn, meira að segja hvernig á að halda á barni,“ segir Mirza sem réði illa við að vera einstæður faðir. Lagaferlið kringum forræðið var ekki erfitt að sögn Mirza en „ég brotnaði niður andlega. Þetta var mjög erfitt“.

Mikið samviskubit

Þegar drengurinn varð eldri fór samband þeirra versnandi og Mirza missti tökin. Versta tilfellilð varð árið 2016 þegar Haris var 11 ára og mátti þola miklar barsmíðar af hálfu föður síns sem var handtekinn í kjölfarið og Haris var komið fyrir á fósturheimili. Mirza missti stjórn á sér þegar Haris stal leikfangabyssu á markaði.

Mirza er með mikið samviskubit yfir hegðun sinni. „Ég reyni að kenna honum að endurtaka ekki gjörðir mínar þegar hann verður eldri og að vera góður maður. Bara ef ég hefði vitað af SOS Barnaþorpunum fyrr. Bara ef ég hefði kunnað réttu aðferðirnar við uppeldi fyrr þá hefði þetta kannski ekki farið svona.“

Þökk sé Fjölskyldueflingu SOS

Teymi fjölskyldueflingar SOS hjálpar þeim feðgum sem eru farnir að búa saman á ný og samband þeirra hefur batnað til muna. „Við erum í stöðugu sambandi við þá feðga og við sjáum að samband þeirra er miklu betra,“ segir Ileana, félagsráðgjafi hjá SOS í Sarajevó.

Haris er nú 14 ára og þeir feðgar sækja báðir einstaklingsmiðaða sálfræðimeðferð hjá SOS Barnþorpunum og taka þátt í hópavinnu með öðrum fjölskyldum. Mirza er duglegur að spyrja sérfræðinga SOS ráða þegar kemur að táningauppeldi. „Ég vil ekki verða eins og lögreglumaður. Ég vil bara treysta honum. Ég veit ekki alveg hvernig ég á að vera.“

SOS Barnaþorpin sjá Haris fyrir aukakennslu og skólagögnum. Honum gengur mjög vel í námi auk þess sem hann stundar körfubolta og tækvondó af kappi. Þá hjálpar hann til við heimilisstörfin og hefur stundum til mat fyrir pabba sinn þegar hann kemur heim af næturvakt.

Það hefur svo sannarlega orðið kúvending á sambandi feðganna og framtíðin björt. Þökk sé fjölskyldueflingu SOS Barnaþorpanna.

*Réttum nöfnum hefur verið breytt

Heimsmarkmiðin

SOS Barnaþorpin vinna að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Um er að ræða framkvæmdaáætlun í þágu mannkynsins, jarðarinnar og hagsældar en með henni er einnig leitast við að stuðla að friði um heim allan. Það úrvinnsluferli SOS sem hjálpar feðgunum heyrir undir heimsmarkmið númer 1, 2, 3 og 4.
heimsmarkmid2.png 

SOS Barnaþorpin uppfylla heimsmarkmið númer 1, 4, 8, 10 og 16 að fullu. Þar að auki uppfylla þau markmið númer 3,5 og 17 að hluta.

SOS foreldri

Vertu SOS foreldri

SOS foreldri

SOS-foreldri framfleytir barni sem áður var umkomulaust og veitir því fjölskyldu á góðu heimili. Barnið fær menntun og öllum grunnþörfum sínum mætt. Þú færð reglulega fréttir og myndir af SOS-barninu þínu.

Þegar þú velur að styrkja „öll börn“ styrkirðu öll börnin í einu SOS barnaþorpi og færð almennar fréttir úr tilteknu barnaþorpi.

Viljir þú styrkja barn í tilteknu landi, t.d. í Króatíu, skrifar þú einfaldlega „Króatía" í dálkinn fyrir athugasemdir.

Mán­að­ar­legt fram­lag
Styrkja eitt barn 3.900 kr á mánuði Styrkja tvö börn 7.800 kr á mánuði Öll börn fyrir 4.500 kr á mánuði