SOS foreldri
SOS-foreldri tekur þátt í að framfleyta barni sem áður var umkomulaust og tryggir því fjölskyldu á góðu heimili. Barnið fær menntun og öllum grunnþörfum sínum mætt. Þú færð reglulega fréttir og myndir af SOS-barninu þínu. Þegar þú velur að styrkja „barnaþorp“ styrkirðu öll börnin í einu SOS barnaþorpi og færð almennar fréttir úr tilteknu barnaþorpi.
Mánaðarlegt framlag
SOS fjölskylduvinur
SOS-fjölskylduvinir styrkja fjölskyldueflingu SOS. Sem SOS-fjölskylduvinur kemurðu í veg fyrir að börn verði vanrækt og yfirgefin. Í fjölskyldueflingu SOS tökum við fyrstu skrefin með fjölskyldum út úr sárafátækt svo þær getið staðið á eigin fótum og veitt börnunum bjarta framtíð. Þú ákveður styrktarupphæðina og færð reglulega uppýsingapóst um verkefnin sem við fjármögnum. Og þú færð endurgreiðslu frá Skattinum.
SOS foreldri barna á Gaza
Sem SOS foreldri barna á Gaza styrkir þú SOS barnaþorpið í Rafah á Gaza í Palestínu með mánaðarlegu framlagi sem nemur 4.500 krónum. Framlagi þínu er varið í daglegan rekstur þorpsins svo tryggja megi öryggi og velferð þeirra barna sem þar búa og fer þeim nú fjölgandi.
Mánaðarlegt framlag
SOS neyðarvinur
SOS Neyðarvinir styrkja neyðaraðgerðir SOS fyrir börn og fjölskyldur þeirra í stríði og á öðrum hamfarasvæðum. Þú getur annað hvort gefið stakt framlag eða gerst mánaðarlegur neyðarvinur. Veldu eitt af boxunum hér fyrir neðan. Athugaðu að þú getur breytt fjárhæðinni.
Stakt framlag
Þú getur styrkt starf SOS Barnaþorpanna með frjálsum, stökum framlögum þegar þér hentar. Þannig tekur þú þátt í að skapa þann fjárhagslega grunn sem gerir samtökunum kleift að fjármagna fjölmörg verkefni í þágu barna! Og þú færð endurgreiðslu frá Skattinum.
Gjafabréf
Ertu að leita að gjöf fyrir einhvern sem vantar ekkert? Gjafabréf SOS heldur áfram að gefa og nauðstödd börn njóta góðs af. Þú ræður upphæðinni og andvirði gjafabréfsins er framlag til SOS Barnaþorpanna í nafni þess sem fær gjafabréfið.
Minningarkort SOS
Hægt er að heiðra minningu látins vinar eða ættingja á fallegan hátt með því að senda peningagjöf til styrktar SOS Barnaþorpunum. Bæði er hægt að panta minningarkortin í síma 564-2910 eða með því að fylla út reitina hér.
Erfðagjöf
Erfðagjafir hafa gert samtökunum kleift að hjálpa mun fleiri munaðarlausum og yfirgefnum börnum en ella. Sá sem gefur erfðagjöf tekur sjálfur ákvörðun um ráðstöfun eigna sinna í stað þess að eftirláta öðrum þá ákvörðun.