Allir virkir styrktaraðilar geta orðið félagar í samtökunum. Skilgreining á virkum styrktaraðila sem er gjaldgengur til félagsaðildar er einstaklingur sem greitt hefur styrktarframlag til samtakanna, í a.m.k. sex mánuði á undanförnum 12 mánuðum, að fjárhæð 6.000 kr. eða meira og þau sem eru ekki í vanskilum með mánaðarlegar greiðslur.
Félagar fá boð á aðalfundi samtakanna. Þeir geta boðið sig fram til stjórnarsetu, kosið til stjórnar og um lagabreytingatillögur.
Félagar eiga rétt á ársskýrslu samtakanna, reikningum, fundargerðum aðalfundar og gildandi samþykktum.
Nánar um réttindi og skyldur félaga í samþykktum SOS Barnaþorpanna.
Félagsaðild
Skrá mig sem félaga í SOS Barnaþorpunum
Félagar greiða félagsgjald og eiga rétt á að sitja aðalfundi, bjóða sig fram til stjórnar og kjósa á aðalfundi. Félagsgjöld eru ákveðin á aðalfundi að fenginni tillögu stjórnar.