Fréttayfirlit 27. júní 2019

15 milljóna króna arfi til SOS hefur verið ráðstafað

Þann 1. júlí 1993 gekk rúmlega fimmtug kona, Anna Kristín Ragnarsdóttir, inn á skrifstofu sýslumannsins í Reykjavík. Hún var ógift og barnlaus en hafði styrkt munaðarlausan dreng í Asíu í gegnum SOS Barnaþorpin. Þar sem hún átti enga skylduerfingja gerði hún erfðaskrá og ráðstafaði eigum sínum þannig sjálf.

Umræddan dag í júlí 1993 mætti hún sem sagt til sýslumannsins með erfðaskrá þar sem skýrt var kveðið á um að eignir hennar, fastar og lausar (að undanskyldu innbúi og persónulegum munum) skyldu renna til SOS Barnaþorpanna og nýtast í þágu barna. Erfðaskráin var skráð hjá sýslumanni og var í hans vörslu þar til Anna lést árið 2010. Í kjölfarið fengu SOS Barnaþorpin litla íbúð hennar á Spáni og lausafé, samtals um 15 milljónir króna.

Anna óskaði eftir því að stofnaður yrði sjóður í hennar nafni, hann ávaxtaður og úthlutað úr honum eftir ákvörðunum stjórnar SOS í þágu barna. Það hefur nú verið gert í þremur úthlutunum í samræmi við óskir hennar eins og þær koma fram í erfðaskránni.

  • 1,5 m.kr. var varið í að hjálpa sárafátækum barnafjölskyldum í Níkaragva til sjálfshjálpar í gegnum Fjölskyldueflingu SOS þar í landi.

  • 1,7 m.kr. var varið til lóðakaupa og byggingar á húsi fyrir einstæða sex barna móður í Gíneu Bissá. Hún var skjólstæðingur Fjölskyldueflingar SOS.

  • Að lokum var síðustu 10 milljónunum úthlutað í fjármögnun á byggingu heimilis fyrir SOS mæður á eftirlaunum í Hojai á Indlandi. Með þessu framlagi vilja SOS Barnaþorpin stuðla að velferð þeirra fyrrverandi SOS mæðra sem þar fá heimili á efri árum sínum og sýna SOS-mæðrum sem nú starfa við uppeldi barna í barnaþorpinu að þær þurfi ekki að hafa áhyggjur af húsnæðismálum eftir að þær hætta að vinna. Langflestir styrktarforeldrar á Íslandi styrkja börn í barnaþorpum á Indlandi. Framkvæmdum við húsnæðið er að ljúka og fá SOS Barnaþorpin það afhent á næstu dögum.

Anna Kristín er ekki ein um að vilja láta skjólstæðinga SOS Barnaþorpanna njóta góðs af ævistarfi sínu. Mikill fjöldi einstaklinga um allan heim ánafnar SOS eignir sínar að hluta til eða öllu leyti eftir sinn dag og þannig getum við hjálpað mun fleiri börnum en ella. Þannig rætast líka óskir þess sem erfðaskrána gerði.

Það er auðvelt að gera erfðaskrá og bendum við áhugasömum á að hafa samband við sýslumann eða lögmann. SOS Barnaþorpin á Íslandi geta bent á lögmenn sem aðstoða við gerð erfðaskráa.

Finna má ítarlegar upplýsingar um fyrirkomulag erfðagjafa hér á heimasíðu okkar.

Nýlegar fréttir

Framboð til stjórnar SOS Barnaþorpanna
12. apr. 2024 Almennar fréttir

Framboð til stjórnar SOS Barnaþorpanna

Aðalfundur samtakanna verður haldinn mánudaginn 13. maí kl. 17:30 í safnaðarheimili Kópavogskirkju. Tilnefningarnefnd SOS Barnaþorpanna óskar nú eftir tillögum um framboð til stjórnar.

Að gefnu tilefni vegna Heru Bjarkar
4. apr. 2024 Almennar fréttir

Að gefnu tilefni vegna Heru Bjarkar

Nokkuð hefur verið um það undanfarið að SOS Barnaþorpin á Íslandi fái skilaboð frá fólki sem lýsir vanþóknun sinni á samstarfi samtakanna við söngkonuna Heru Björk Þórhallsdóttur og þess jafnvel krafi...