Allar fjölskyldurnar komnar með vatnshreinsitæki
Allar fjölskyldurnar í Fjölskyldueflingarverkefni okkar á Tulu-Moye svæðinu í Eþíópíu fengu á dögunum afhent sólarorkuknúið vatnshreinsitæki sem metur hvenær vatn er orðið drykkjarhæft. SOS Barnaþorpin á Íslandi fjármagna verkefnið sem hófst 1. janúar sl. og stendur yfir út árið 2021. Við styðjum við sárafátækar barnafjölskyldur á svæðinu sem í eru um 1500 börn. Framlögum Fjölskylduvina SOS Barnaþorpanna á Íslandi er ráðstafað í þetta verkefni og annað líkt sem við fjármögnum í Perú.
VERTU FJÖLSKYLDUVINUR FYRIR 1000 KRÓNUR Á MÁNUÐI EÐA AÐRA UPPHÆÐ AÐ EIGIN VALI
567 sjálfboðaliðar fengu þjálfun til að kenna fjölskyldunum á vatnshreinstækið. Það nemur styrk UV sólargeislanna sem drepa sýkla og örverur og er þannig búið að á því getur bæði birst broskarl og fýlukarl. Ef plastflaska full af vatni er látin standa úti í sólinni og tækið við hliðina á, gefur broskarlinn til kynna að vatnið sé orðið drykkjarhæft. Svo lengi sem fýlukarlinn er á tækinu, er vatnið enn ódrykkjarhæft. Með þessu móti er hægt að sporna við sjúkdómum sem orsakast vegna skítugs drykkjarvatns.
Veitir líka öryggiskennd
Gishu Tumsa, 35 ára einstæð móðir þriggja barna, er einn af skjólstæðingum verkefnisins sem hefur fengið vatnshreinsitækið. Hún hlaut kennslu í notkun á tæknu sem hún segir hafa gjörbreytt öllu. „Það veitir mér mikla öryggiskennd að vita núna að við erum að drekka ómengað vatn. Það var líka vitundarvakning fólgin í kennslunni því nú sýni ég meiri varkárni með val á ílátum undir vatnið.“
SOS Barnaþorpin á Íslandi vinna verkefnið í samvinnu við yfirvöld á Tulu-Moye svæðinu og heimafólk. Markmið þess er að auka hæfni og getu þessara fjölskyldna til að standa á eigin fótum og mæta þörfum barnanna svo velferð þeirra sé tryggð til framtíðar. Skjólstæðingar verkefnisins fá aðgang að heilsugæslu, mataraðstoð, menntun og fræðslu ásamt því að þeir geta fengið vaxtalág örlán frá SOS Barnaþorpunum.
Utanríkisráðuneyti Íslands styrkti Fjölskyldueflinguna í Tulu-moye um 67,6 milljónir króna.
Nýlegar fréttir
Af hverju stappa börn niður fótunum?
Alþjóðlegur dagur barnsins er í dag á 35 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. SOS Barnaþorpin ýttu í dag úr vör herferð með þeim tilgangi að útvega börnum þann vettvang sem þau eiga rétt á til...
Börnin í Líbanon heil á húfi
SOS Barnaþorpin í Líbanon hafa staðfest að öll börn og ungmenni á framfæri samtakanna í landinu eru heil á húfi. Stríðsástandið í landinu hefur þó áhrif á börnin sem áfram er hlúð vel að.