Ástandið fer versnandi vegna langvarandi þurrka
„Langvarandi þurrkar hafa haft skelfilegar afleiðingar í austan- og sunnanverðri Afríku. Ástandið fer versnandi þar sem matar- og vatnsskortur færist í aukana,“ segir Dereje Wordofa, starfsmaður SOS Barnaþorpanna í Eþíópíu en samtökin sinna neyðaraðstoð í heimshlutanum.
Talið er að um tíu milljónir manns í Eþíópíu séu í sárri þörf fyrir mat vegna þurrkanna ásamt 14 milljónum til viðbótar í sunnanverðri Afríku. Sameinuðu þjóðirnar telja að um 56 þúsund börn þjáist af vannæringu í Sómalíu og yfir 300 þúsund í Eþíópíu.
„Börnin eru einstaklega varnarlaus í þessum aðstæðum. Vegna þeirra reynum við að bregðast fljótt við en við þurfum líka að hugsa til lengri tíma. Matar- og vatnsskortur líkt og þessi hefur áhrif til langs tíma, “ segir Dereje sem hefur yfir þrjátíu ára reynslu af hjálparstarfi.
En hversu mikil er þörfin? „Hún er mjög mikil. Við munum öll eftir hungursneyðinni sem varð hundruð þúsundum manna að bana í Eþíópíu fyrir nærri þrjátíu árum. Nú þurfa allir að halda vel á spöðunum og ég vona að hjálparstofnanir og yfirvöld bregðist fyrr við í þetta skiptið,“ segir Dereje sem þó er bjartsýnn á framhaldið. „Aðstæður í þessum heimshluta verða betri með hverju árinu og við eigum að geta tekist á við þetta erfiða verkefni með sóma.“
Neyðaraðstoð SOS Barnaþoranna gengur vel þó svo að þurrkarnir hafi áhrif á matarverð sem gerir öllum hjálparsamtökum erfitt fyrir. „Við gerum þó allt í okkar valdi til að sinna þeim verst stöddu og eins og áður leggjum við áherslu á aðstoð við börn og barnafjölskyldur í neyð,“ segir Dereje að lokum.
Nýlegar fréttir
Fulltrúi íslenskra yfirvalda sat viðburð SOS hjá Sameinuðu þjóðunum
Alþjóðlegri herferð SOS Barnaþorpanna, „Stappað fyrir friði“, var hrundið af stað á þriðjudaginn í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York í aðdraganda 35 ára afmælis Barnasáttmálans. Íslensk börn ...
Af hverju stappa börn niður fótunum?
Alþjóðlegur dagur barnsins er í dag á 35 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. SOS Barnaþorpin ýttu í dag úr vör herferð með þeim tilgangi að útvega börnum þann vettvang sem þau eiga rétt á til...