Boðað til aðalfundar SOS á Íslandi
SOS Barnaþorpin boða til aðalfundar miðvikudaginn 18. maí kl.17:15 í safnaðarheimili Kópavogskirkju, Hábraut 1a (gegnt Gerðasafni). Þátttökurétt á fundinum eiga aðildarfélagar SOS sem greitt hafa árgjald.
Dagskrá fundarins er þannig:
1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningar lagðir fram til samþykktar
3. Lausn stjórnar og annarra ábyrgða
4. Kosning stjórnar og varamanna
5. Kosning endurskoðanda
6. Ákvörðun um breytingar á samþykktum
7. Ákvörðun félagsgjalds
8. Önnur mál
Enn er hægt að skrá sig í félagsaðild að SOS Barnaþorpunum og er það gert hér. Allir einstaklingar sem styrkja mánaðarlega starf samtakanna, og hafa gert í a.m.k. sex mánuði, geta orðið félagar í samtökunum séu þeir ekki í vanskilum með styrktarframlög sín.
Félagsaðild
Skrá mig sem félaga í SOS Barnaþorpunum
Félagar greiða félagsgjald og eiga rétt á að sitja aðalfundi, bjóða sig fram til stjórnar og kjósa á aðalfundi. Félagsgjöld eru ákveðin á aðalfundi að fenginni tillögu stjórnar.