Fréttayfirlit 14. mars 2019

Fjölskylduefling SOS hjálpar hálfri milljón manna

Fjölskylduefling SOS hjálpar hálfri milljón manna

SOS-fjölskylduvinir fjármagna Fjölskyldueflingu SOS. Hún gengur út á að sárafátækar barnafjölskyldur í nágrenni SOS barnaþorpa fá aðstoð til sjálfshjálpar svo þær getið séð fyrir börnum sínum og mætt grunnþörfum þeirra.

Fjölgun hefur verið á Fjölskylduvinum SOS að undanförnu. Nærri 1400 Íslendingar styðja Fjölskyldueflinguna með því að greiða mánaðarlegat framlag að eigin vali frá 500 krónum upp úr. Smá upphæð á Íslandi er t.d. risastór upphæð í Eþíópíu þar sem eitt verkefna okkar er.

Þrjú verkefni SOS á Íslandi

SOS Barnaþorpin á Íslandi fjármagna þrjú Fjölskyldueflingarverkefni, í Eþíópíu, Perú og Filippseyjum.

  • Í verkefninu í Tulu Moye í Eþíópíu hjálpum við 567 fjölskyldum og í þeim eru 1609 börn.
  • Í Perú eru fjölskyldur um eitt þúsund barna og ungmenna sem nýta sér aðstoð Fjölskyldueflingar okkar.
  • Fjölskyldueflingin á Filippseyjum hefst 1. apríl n.k. og nær til 1800 barna og ungmenna.

Skjólstæðingar Fjölskyldueflingar SOS Barnaþorpanna á heimsvísu eru alls 505,800 talsins í yfir 98 þúsund fjölskyldum. Samtals eru þetta 574 Fjölskyldueflingarverkefni sem eru sérsniðin að aðstæðum á hverjum stað fyrir sig.

Nýlegar fréttir

Á þriðja tug milljóna króna til SOS í Palestínu
23. apr. 2024 Almennar fréttir

Á þriðja tug milljóna króna til SOS í Palestínu

SOS Barnaþorpin á Íslandi senda á næstu dögum tíu milljónir króna til SOS í Palestínu vegna neyðaraðgerða á Gaza. Rúmar átta milljónir króna hafa safnast í söfnun SOS á Íslandi sem hófst í febrúar og ...

Aðalfundur SOS Barnaþorpanna 2024
22. apr. 2024 Almennar fréttir

Aðalfundur SOS Barnaþorpanna 2024

Boðað er til aðalfundar SOS Barnaþorpanna mánudaginn 13. maí kl.17:30 í safnaðarheimili Kópavogskirkju, Hábraut 1a (gegnt Gerðasafni). Til þess að félagi geti nýtt félagsleg réttindi sín á aðalfundi s...