„Héldum að við yrðum drepin“

Í apríl sögðum við frá rýmingu barnaþorps í höfuðborg Súdan vegna blóðugra átaka í nágrenni þess. Í kjölfarið var þorpið svo hertekið af vopnuðum sveitum og halda þær enn til í barnaþorpinu.
Börnin voru öll flutt við illan leik í öruggt skjól utan höfuðborgarinnar. Þar reyna þau að ná áttum og jafna sig eftir að hafa séð og upplifað hræðilega hluti sem ekkert barn ætti að þurfa að sjá og upplifa. Raunar glíma þau mörg við alvarlegar sálarlegar afleðingar þessa áfalls og þurfa aðstoð sérfræðinga.
„Þetta var hræðileg reynsla", segir forstöðumaður SOS barnaþorpsins í Karthoum. Þar vísar hann til þess þegar skotbardagar áttu sér stað rétt utan við barnaþorpið. „Satt best að segja héldum við að við yrðum drepin í þessum átökum. Þetta var algjör martröð.“
Skemmdir á barnaþorpinu
„Sem betur fer áttum við nægar birgðir þegar átökin brutust út. Börnin höfðu alltaf nóg að borða. Það var samt erfiðara með vatnið. Pípulagnir og vatnstankur skemmdust í átökunum og við þurftum að sækja vatn út fyrir barnaþorpið, sem var bæði erfitt og hættulegt."
Sem fyrr segir eru börnin nú örugg og bíður starfsfólk SOS í Súdan þess að barnaþorpinu verði skilað í hendur SOS og þá má búast við að ráðast þurfi í endurbætur og þrif áður en börnin geta snúið aftur heim.
Nýlegar fréttir

Tæland: Börn og starfsfólk óhult
Öll börn og starfsfólk SOS Barnaþorpanna í Tælandi eru heil á húfi eftir stóra jarðskjálftann sem reið yfir landið og nágrannalönd í gær.

Utanríkisráðherra gerði rammasamning við SOS
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra skrifaði á mánudaginn undir rammasamning við SOS Barnaþorpin til fjögurra ára. Framlög ráðuneytisins til SOS á þessu tímabili nema samtals 689 milljónu...