Nemendur FSU söfnuðu 200.000 krónum fyrir Fjölskyldueflingu SOS
Í byrjun október stóð nemendafélag Fjölbrautaskóla Suðurlands fyrir góðgerðarviku í skólanum. Tilgangurinn var að safna pening fyrir gott málefni og í ár völdu þau SOS Barnaþorpin.
Í upphafi góðgerðarvikunnar fengu nemendur og kennarar kynningu á starfi SOS Barnaþorpanna og þá sérstaklega á Fjölskyldueflingu SOS í Eþíópíu en það var verkefnið sem safna átti fyrir. Nemendur skipulögðu alls konar uppákomur sem höfðu það markmið að safna pening fyrir SOS Barnaþorpin.
Nemendur og kennarar gátu einnig skorað hver á annan og lagt pening undir. Vikan endaði svo á uppgjörshátíð þar sem nemendur og kennarar öttu kappi í óhefðbundnum boltaíþróttum. Alls söfnuðust kr. 200.000 sem nýttar verða í Fjölskyldueflingu SOS í Eþíópíu við uppbyggingu á nýrri salernisaðstöðu við skóla á Tulu Moye svæðinu í Eþíópíu.
GERAST SOS-FJÖLSKYLDUVINUR (fyrir 500 krónur á mánuði)
SOS Barnaþorpin þakka nemendafélagi FSU og nemendum skólans kærlega fyrir frábært framtak sem er svo sannarlega til fyrirmyndar.
Sólmundur Magnús Sigurðsson, formaður nemendafélags FSU, afhenti Hjördísi Rós Jónsdóttur, fræðslufulltrúa SOS Barnaþorpanna, framlagið sem safnaðist.
Meðal verkefna í Fjölskyldueflingu okkar á Tulu Moye svæðinu er bygging nýrra salerna á skólalóðum sem eru aðskilin fyrir kynin. Á meðfylgjandi myndum hér fyrir neðan má sjá muninn á gömlu salerni og nýbyggðu salerni á lóð eins grunnskólans í þorpinu Iteya. Styrkurinn frá nemendum FSU fjármagnar einmitt byggingu þessarar salernisaðstöðu.
Nýlegar fréttir
Af hverju stappa börn niður fótunum?
Alþjóðlegur dagur barnsins er í dag á 35 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. SOS Barnaþorpin ýttu í dag úr vör herferð með þeim tilgangi að útvega börnum þann vettvang sem þau eiga rétt á til...
Börnin í Líbanon heil á húfi
SOS Barnaþorpin í Líbanon hafa staðfest að öll börn og ungmenni á framfæri samtakanna í landinu eru heil á húfi. Stríðsástandið í landinu hefur þó áhrif á börnin sem áfram er hlúð vel að.