Skelfilegt ástand í Nígeríu - SOS hjálpar 4 þúsund börnum
Hræðilegt ástand er í Bornohéraði í norð-austur Nígeríu vegna stríðsátaka og eru SOS Barnaþorpin á Íslandi að styrkja neyðaraðstoðarverkefni þar um 5 milljónir króna. Börnum er reglulega rænt á þessu svæði, þau verða fyrir kynferðislegri misnotkun, missa fjölskyldumeðlimi og verða viðskila við foreldra sína.
Nýjustu upplýsingar okkar frá Borno eru þær að 2,3 milljónir manna eru á vergangi og yfir 230 þúsund manns hafa flúið til nágrannalanda. Ofbendið kemur niður á grunnstoðum samfélagsins eins og menntun og heilbrugðisþjónustu og matarskortur og smitsjúkdómar setja börn í aukna hættu.
SOS Barnaþorpin hafa yfir þriggja áratuga reynslu af fjölskylduaðstoð á svæðinu og áætlanir eru um að ná til fjögur þúsund barna, verja þau gegn ofbeldinu og veita þeim alla nauðsynlega aðstoð. Meðal verkefna í forgangi eru uppsetning barnaverndarmiðstöðvar með sálfræði- og félagslegri aðstoð, aukið aðgengi að vatni, aðstoð fyrir fórnarlömb kynferðisglæpa og þjálfun starfsfólks.
„Þetta er of stórt verkefni fyrir ein hjálparsamtök. Okkar takmark er að hjálpa fjögur þúsund börnum og útvega þeim ástrík heimili sem hafa misst foreldraumsjón. Þetta er bara byrjunin.“ segir Eghosa Erhumwunse, framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpanna í Nígeríu.
Styrkur SOS Barnaþorpanna á Íslandi til þessa neyðaraðstoðarverkefnis er greiddur með frjálsum framlögum styrktaraðila okkar hér á landi, meðal annars þeirra sem greiða valkröfur í heimabanka.
Nýlegar fréttir
Af hverju stappa börn niður fótunum?
Alþjóðlegur dagur barnsins er í dag á 35 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. SOS Barnaþorpin ýttu í dag úr vör herferð með þeim tilgangi að útvega börnum þann vettvang sem þau eiga rétt á til...
Börnin í Líbanon heil á húfi
SOS Barnaþorpin í Líbanon hafa staðfest að öll börn og ungmenni á framfæri samtakanna í landinu eru heil á húfi. Stríðsástandið í landinu hefur þó áhrif á börnin sem áfram er hlúð vel að.