Skólabörn í Eþíópíu nota íslenskt námskerfi
15 börn og ungmenni í grunnskóla SOS barnaþorpsins í Bahir Dar í Eþíópíu fengu í desember afhendar spjaldtölvur sem þeim var umbunað með fyrir góðan árangur í stærðfræðiæfingum íslenska æfingakerfisins SmileyTutor. Þetta markar upphafið á samstarfi SOS Barnaþorpanna á Íslandi og styrktarfélagsins Broskalla með stuðningi styrktarsjóðs Hringfarans.
„Það er bjargföst trú mín, eftir að hafa farið á mótorhjóli í gegnum Afríku, að menntun afrískra barna sé mikilvægasta skrefið til að koma Afríku úr sárri fátækt," segir Hringfarinn, Kristján Gíslason sem er að góðu kunnur fyrir sjónvarpsþætti og bækur um ferðalög sín á mótorhjóli umhverfis jörðina. Samhliða því starfrækir hann ásamt eiginkonu sinni, Ásdísi Rósu Baldursdóttur, styrktarsjóð Hringfarans sem veitir fjárhagslegan stuðning til samstarfsins.
Erfiðasti þröskuldur fyrir nemendur í mörgum löndum Afríku er stærðfræði og þar kemur æfingakerfið SmileyTutor að góðum notum. Gunnar, höfundur SmileyTutor
Hjálpar ungmennum að komast í háskóla
Gunnar Stefánsson og Anna Helga Jónsdóttir, kennarar í tölfræði við Háskóla Íslands, hafa leitt þróun æfingakerfisins í um tvo áratugi og standa fyrir styrktarfélaginu Brosköllum.
„Aðferðafræðin er þannig að nemendur fá umbun í formi punkta (Broskalla eða Smiley) eftir því sem þau vinna sig áfram í kerfinu. Þegar nemandi hefur unnið sig í gegnum efni til stúdentsprófs í stærðfræði og náð þannig milljón Brosköllum má nota þá til að kaupa sér spjaldtölvu og Styrktarfélagið sendir um leið fleiri spjaldtölvur á staðinn,“ segir Gunnar. Vefkerfið sjálft er á smileytutor.is og er opið öllum.
Markmið Styrktarfélagsins Broskalla er að gefa nemendum möguleika á að ná þeirri kunnáttu og færni sem þarf til að komast í háskóla. „Erfiðasti þröskuldur fyrir nemendur í mörgum löndum Afríku er stærðfræði og þar kemur æfingakerfið SmileyTutor að góðum notum,“ bætir Gunnar við.
Mikill áhugi hjá stúlkum
SOS barnaþorpið í Bahir Dar fékk í upphafi 15 spjaldtölvur. „Nemendur í Bahir Dar tóku þessu tækifæri fagnandi, sérstaklega þó nokkrar stúlkur sem hættu engu æfingasafni fyrr en þær höfðu náð fullkomnum tökum á hverju þeirra," segir Gunnar. Þess má til gamans geta að 35 af börnunum í SOS barnaþorpinu í Bahir Dar eiga SOS-foreldra á Íslandi.
Aðal styrktarmálefni Hringfarans
Kristján og Ásís Rósa hafa í tilefni af þessu samstarfi gert breytingar á úthlutunaráherslum sjóðsins. „Héðan í frá verður SmileyTutor verkefnið okkar aðal styrktarmálefni. Ástæðan er fyrst og fremst sú að við finnum fyrir gríðarlegri jákvæðni og árangri af þessu verkefni. Með umbunarþætti kerfisins sjá nemendur tilganginn í að læra og síðar meir munu þau sjá hversu mikilvæg menntun er í öllum framförum," segir Kristján.
Á vef Hringfarans er stutt myndskeið sem útskýrir æfingakerfið SmileyTutor sem bar upphaflega nafnið Tutor-Web.
Nýlegar fréttir
Fulltrúi íslenskra yfirvalda sat viðburð SOS hjá Sameinuðu þjóðunum
Alþjóðlegri herferð SOS Barnaþorpanna, „Stappað fyrir friði“, var hrundið af stað á þriðjudaginn í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York í aðdraganda 35 ára afmælis Barnasáttmálans. Íslensk börn ...
Af hverju stappa börn niður fótunum?
Alþjóðlegur dagur barnsins er í dag á 35 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. SOS Barnaþorpin ýttu í dag úr vör herferð með þeim tilgangi að útvega börnum þann vettvang sem þau eiga rétt á til...