Fréttayfirlit 10. júní 2024

Söfnuðu rúmlega milljón fyrir börn í neyð á Gaza

Söfnuðu rúmlega milljón fyrir börn í neyð á Gaza

Nemendur í Kársnesskóla héldu sinn árlega góðgerðardag nú á dögunum þar sem þeir söfnuðu rúmlega einni milljón króna fyrir börn í neyð á Gaza. Nemendur og starfsfólk skólans höfðu undirbúið daginn vel og buðu upp á metnaðarfulla dagskrá fyrir gesti og gangandi.

Kusu hjálparsamtök með lýðræðislegum hætti

Á hverju ári halda nemendur Kársnesskóla góðgerðardag í samstarfi við foreldrafélag skólans. Góðgerðgerðdagurinn er fjáröflunarverkefni þar sem börn safna fyrir börn. Með verkefninu vilja nemendur nýta sköpunarkrafta sína til að láta gott af sér leiða.

Það var metnaðarfull dagskráin hjá skólanum í aðdraganda góðgerðardagsins. Fyrst kusu nemendur í 7. bekk með lýðræðislegum hætti hvaða hjálparsamtök þau vildu styrkja í ár og svo skiptu nemendur sér upp í alls konar hópa til að undirbúa daginn sjálfan.

Eva Ruza segir nemendum frá starfsemi SOS Barnaþorpanna Eva Ruza segir nemendum frá starfsemi SOS Barnaþorpanna

Velgjörðarsendiherra SOS Barnaþorpanna

Viku fyrir góðgerðardaginn heimsóttu þær Eva Ruza Milj­evic, velgjörðarsendiherra SOS Barnaþorpanna og Hjördís Rós Jónsdóttir, fræðslufulltrúi SOS, nemendur Kársnesskóla. Þær sögðu þeim frá starfsemi samtakanna og hvernig aðstoð samtökin væru að veita á Gaza svæðinu. Börnin voru mjög áhugasöm og fylgdust einstaklega vel með.

Börnin föndruðu ýmsan varning og seldu á góðgerðardeginum Börnin föndruðu ýmsan varning og seldu á góðgerðardeginum

Fjölbreytt og metnaðarfull dagskrá

Nemendur höfðu föndrað og útbúið fjölbreyttan varning eins og sjá má á myndunum. Það er auðséð að krakkarnir eru afar skapandi og allir nemendur og starfsfólk skólans voru mjög virkir þátttakendur í undirbúningnum.

Á sjálfum góðgerðardeginum, sem haldinn var 23. maí, var fullt út úr dyrum enda höfðu nemendur boðið fjölskyldum sínum, vinum og hverfinu öllu í skólann. Í lok dags kom í ljós að nemendur höfðu safnað hærri upphæð en nokkru sinni fyrr eða kr. 1.052.883 fyrir SOS Barnaþorpin og neyðaraðgerðir samtakanna á Gaza. Nokkrir fulltrúar skólans, þau Ljósbjörg, Lovísa, Valdimar og Helgi, komu í heimsókn á skrifstofu SOS Barnaþorpanna ásamt kennaranum sínum, Guðnýju Jónsdóttur og afhentu starfsfólki SOS afrakstur dagsins.

Frá afhendingunni. Hjördís Rós, fræðslufulltrúi, Helgi, Valdimar, Lovísa og Ljósbjörg, fulltrúar Kársnesskóla með Guðnýju kennara. Frá afhendingunni. Hjördís Rós, fræðslufulltrúi, Helgi, Valdimar, Lovísa og Ljósbjörg, fulltrúar Kársnesskóla með Guðnýju kennara.

SOS Barnaþorpin senda nemendum, foreldrum og starfsfólki Kársnesskóla innilegar þakkir fyrir alla þá vinnu sem þau lögðu í viðburðinn og framlag þeirra til barna í neyð.

 

SOS foreldri barna á Gaza

SOS foreldri barna á Gaza

SOS foreldri barna á Gaza

Sem SOS foreldri barna á Gaza styrkir þú SOS barnaþorpið í Rafah á Gaza í Palestínu með mánaðarlegu framlagi sem nemur 4.500 krónum. Framlagi þínu er varið í daglegan rekstur þorpsins svo tryggja megi öryggi og velferð þeirra barna sem þar búa og fer þeim nú fjölgandi.

Mánaðarlegt framlag
4.500 kr