SOS kom til bjargar í vetrarhörkum í Líbanon
Við þekkjum það hérna á Íslandi hversu kaldir veturnir geta orðið og því eigum við flest hlý föt til að klæðast þegar þannig viðrar. Sýrlensk flóttabörn í Líbanon voru ekki svona vel búin á dögunum þegar mjög slæmt veður gekk yfir Bekaa-dalinn en þar er SOS barnaþorp í bænum Ksarnaba. Tíðarfar á svæðinu hefur verið óvenju slæmt en SOS Barnaþorpin voru vel undir það búin og dreifðu í síðustu viku hlýjum vetrarfatnaði til flóttafjölskyldna á svæðinu.
Mikil þörf er á hlýjum skóm, yfirhöfnum, sokkum og slíkum fatnaði fyrir börn að 14 ára aldri. „Vetrarfatnaður er mjög sjaldgæfur hérna og það er lítið um að önnur hjálparsamtök dreifi slíkum fatnaði. Við áttum til hlý föt sem safnast höfðu fyrir framlög styrktaraðila og við náðum því að skaffa fólkinu fötin,“ segir Salman Dirani, framkvæmdastjóri SOS barnaþorpsins í Ksarnaba.
SOS Barnaþorpin í Líbanon settu í mars árið 2017 á laggirnar neyðarverkefni í Bekaa-dalnum sem felur í sér að styðja fjölskyldur í erfiðum aðstæðum, alls 330 fjölskyldur. Nærri ein milljón Sýrlendinga hafa sótt um hæli í Líbanon frá því borgarastyrjöldin í Sýrlandi hófst árið 2011.
SOS Barnaþorpin á Íslandi taka reglulega þátt í að leggja fjármagn til neyðarverkefna af þessu tagi. Frjáls framlög einstaklinga og fyrirtækja fjármagna slíka styrki og viljir þú taka þátt í því er allar upplýsingar um frjáls framlög að finna hér.
Úthlutun fatnaðarins á við um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun nr. 1 og 3. SOS Barnaþorpin uppfylla heimsmarkmið númer 1, 4, 8, 10 og 16 að fullu. Þar að auki uppfylla þau markmið númer 3,5 og 17 að hluta. Heimsmarkmiðin eru liður framkvæmdaáætlun í þágu mannkynsins, jarðarinnar og hagsældar en með henni er einnig leitast við að stuðla að friði um heim allan.
Nýlegar fréttir
Af hverju stappa börn niður fótunum?
Alþjóðlegur dagur barnsins er í dag á 35 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. SOS Barnaþorpin ýttu í dag úr vör herferð með þeim tilgangi að útvega börnum þann vettvang sem þau eiga rétt á til...
Börnin í Líbanon heil á húfi
SOS Barnaþorpin í Líbanon hafa staðfest að öll börn og ungmenni á framfæri samtakanna í landinu eru heil á húfi. Stríðsástandið í landinu hefur þó áhrif á börnin sem áfram er hlúð vel að.