Fréttayfirlit 9. janúar 2019

Þökkuðu Jóni innilega fyrir peningagjöfina

Fagnaðarfundur var í vikunni þegar einn af okkar dyggustu stuðningsmönnum, Jón Pétursson, kom til okkar á skrifstofuna í Hamraborg í Kópavogi til að eiga myndsímtal við tvö fyrrverandi styrktarbörn sín í Brasilíu. Um er að ræða systkinin Graciane og Leomar sem fengu á dögunum afhenda peningagjöf frá Jóni, fjórar milljónir króna.

Jón byrjaði að styrkja systkinin árið 1991 þegar Graciane var tveggja ára og bróðir hennar Leomar var 5 ára. Á símafundinum lýstu þau hjartnæmu þakklæti til Jóns fyrir peningagjöfina sem kemur sér afar vel því þau standa bæði í íbúðarkaupum. Þau sögðu Jóni að hann væri ekki bara guðfaðir þeirra heldur líka þeirra helsta föðurímynd.

Grét af gleði þegar hún sá Jón

Jón heimsótti barnaþorpið þeirra í Santa Maria tvisvar í kringum aldamótin og dvaldi þá hjá forstöðumanni þorpsins sem var viðstaddur símafundinn nú í vikunni. Það var líka eiginkona forstöðumannsins og grét hún svo mikið af gleði við að sjá Jón að hún kom varla upp orði.

Jón styrkti SOS Barnaþorpin alls um 10 milljónir króna með einni greiðslu nú í lok ársins 2018. Graciane og Leomar fá af þeirri upphæð áðurnefndar fjórar milljónir króna en afgangurinn skiptist á milli barnaþorpsins í Santa Maria og SOS á Íslandi.

Viðtal við Jón

Ítarlegt viðtal var við Jón í nýjasta fréttablaði SOS Barnaþorpanna sem kom út milli jóla og nýárs og má lesa það hér.

3. tölublað fréttablaðs SOS Barnaþorpanna

Fréttablað_3_2018_forsíða.jpg

Nýlegar fréttir

Á þriðja tug milljóna króna til SOS í Palestínu
23. apr. 2024 Almennar fréttir

Á þriðja tug milljóna króna til SOS í Palestínu

SOS Barnaþorpin á Íslandi senda á næstu dögum tíu milljónir króna til SOS í Palestínu vegna neyðaraðgerða á Gaza. Rúmar átta milljónir króna hafa safnast í söfnun SOS á Íslandi sem hófst í febrúar og ...

Aðalfundur SOS Barnaþorpanna 2024
22. apr. 2024 Almennar fréttir

Aðalfundur SOS Barnaþorpanna 2024

Boðað er til aðalfundar SOS Barnaþorpanna mánudaginn 13. maí kl.17:30 í safnaðarheimili Kópavogskirkju, Hábraut 1a (gegnt Gerðasafni). Til þess að félagi geti nýtt félagsleg réttindi sín á aðalfundi s...