Þurfti tvisvar að flýja með börnin úr barnaþorpum vegna stríðsátaka
Ímyndaðu þér hvernig það væri að ala börn upp á stríðshrjáðu svæði og þurfa að flýja heimili þitt, ekki einu sinni heldur tvisvar. Ímyndaðu þér líka hvernig það er að ala upp 35 börn á 40 árum. Þetta eru sögur tveggja SOS mæðra sem okkur langar að kynna fyrir ykkur í tveimur myndskeiðum.
SOS Barnaþorpin heiðra tvær ofurmömmur
Salam Khalaf frá Sýrlandi og Chandra Kala Thapa frá Nepal voru á dögunum heiðraðar fyrir starf sitt hjá SOS Barnaþorpunum og þeim veitt Helmut Kutin viðurkenningin.
Stríðsátök reyna á börnin
Árið 2012 þurfti að rýma SOS barnaþorpið í Aleppó vegna stríðsátakanna í Sýrlandi og þar bjó þá Salam ásamt SOS-börnum sínum. Hún hjálpaði SOS-börnunum sínum að jafna sig og aðlagast lífinu í barnaþorpinu í Damaskus sem þau þurftu svo einnig að flýja vegna stríðsátaka en gátu snúið aftur til síðar.
„Ég hef orðið vitni að því síðustu átta ár sérstaklega hversu mörg börn í Sýrlandi hafa átt erfitt líf og hversu mikilvægt það er að við stöndum saman um að bjarga þeim,“ sagði Salam þegar hún veitti viðurkenningunni viðtöku. Áhugaverða frásögn Salam af lífsreynslu hennar og barnanna má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.
Ól upp 35 börn á 40 árum
Chandra er ein þeirra SOS-mæðra sem lengst hafa starfað hjá SOS Barnaþorpunum í dag. Hún hefur tileinkað síðustu 40 árum lífs síns í að ala upp 35 börn í barnaþorpinu Gandaki í Nepal eða síðan hún var tvítug. „Með skilyrðislausri ást og umhyggju veitum við börnunum heimilislega tilfinningu, leiðbeinum þeim í átt að sjálfstæði og hjálpum þeim að skilja sársaukann eftir í fortíðinni,“ sagði Chandra. Frásögn hennar má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.
Nýlegar fréttir
Af hverju stappa börn niður fótunum?
Alþjóðlegur dagur barnsins er í dag á 35 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. SOS Barnaþorpin ýttu í dag úr vör herferð með þeim tilgangi að útvega börnum þann vettvang sem þau eiga rétt á til...
Börnin í Líbanon heil á húfi
SOS Barnaþorpin í Líbanon hafa staðfest að öll börn og ungmenni á framfæri samtakanna í landinu eru heil á húfi. Stríðsástandið í landinu hefur þó áhrif á börnin sem áfram er hlúð vel að.