Fréttayfirlit 24. janúar 2020

Ungmenni streyma á vinnumarkaðinn í Sómalíu og Sómalílandi

Ungmenni streyma á vinnumarkaðinn í Sómalíu og Sómalílandi

116 ungmenni í Sómalíu og Sómalílandi hafa nú lokið þjálfun á fyrsta ári í atvinnueflingunni The Next Economy (TNE) sem fjármögnuð er af SOS Barnaþorpunum á Íslandi og Utanríkisráðuneytinu. Ungmennin streyma nú út á atvinnumarkaðinn, 59 stúlkur og 57 piltar. 200 ungmenni hafa lokið tveimur af þremur fösum þjálfunarinnar.

SOS á Íslandi og Utanríkisráðuneytið fjármagna annan hluta verkefnisins sem hófst í byrjun árs 2019 og lýkur 31. desember 2021.

ÍSLENDINGAR HJÁLPA UNGMENNUM Í SÓMALÍU OG SÓMALÍLANDI AÐ FÁ VINNU

16 þessara ungmenna fengu strax lærlingsstöður og fleiri fylgdu í kjölfarið. Þar að auki hafa 52 ungmenni haldið áfram á næsta stig þjálfunarinnar og nema nú frumkvöðlafræði. Ungmennin eru með viðskiptahugmyndir sem þau vinna með þjálfurum verkefnisins og þegar þær eru fullmótaðar er efnt til hópfjármögnunar.

Ætlar að opna blómabúð

Mohamud Abdisalan hefur safnað $900 dollurum fyrir viðskiptahugmynd sína. Hann ætlar að opna blómabúð sem selur lifandi blóm og gjafavöru í Mogadishu. „Hugmyndin kviknaði út frá því að útskriftarnemar vilja allir hafa blóm í útskriftarveislunum sínum en hér eru eingöngu fáanleg gerviblóm,“ segir Mohamud.

Fjöldi fyrirtækja býður lærlingsstöður

TNE verkefninu er stýrt af SOS Barnaþorpunum og fer þjálfunin fram í höfuðborgunum Hargeisa í Sómalílandi og Mogadishu í Sómalíu. Þátttakendur sækja bæði um á almennum vinnumarkaði að þjálfun lokinni og hjá samstarfsfyrirtækjum sem veita lærlingsstöður. Vel gengur að fá fyrirtæki til samstarfs, bæði opinber og úr einkageiranum og hafa 40 ný fyrirtæki bæst við á verkefnistímanum sem fjármagnaður er af SOS á Íslandi.

TNE5.JPGUngu fólki gengur illa að fá vinnu

Þrátt fyrir uppgang í efnahag Afríku undanfarin 15 ár virðast atvinnutækifærin ekki rata í hendur stórs hluta 420 milljóna ungmenna álfunnar. Sómalska þjóðin er enn að ná sér á strik eftir áratuga ófrið og óstöðugleika og helmingur þjóðarinnar lifir undir fátæktarmörkum. Einn þriðji hluti barna í landinu býr við sárafátækt og mikið atvinnuleysi er meðal ungmenna sem fyrir vikið leiðast auðveldlega út á glæpabraut. Tilgangur SOS með TNE verkefninu er m.a. að leggja sitt af mörkunum til að bæta þar úr.

64 milljónir frá Íslandi

Heildarkostnaður við annan hluta verkefnisins sem fjármagnaður er af Íslendingum er 64,4 milljónir króna. Heildarframlag utanríkisráðuneytisins er kr. 51.525.788.- og heildarframlag SOS Barnaþorpanna á Íslandi kr. 12.881.447.

TNE4.JPG

Nýlegar fréttir

Af hverju stappa börn niður fótunum?
20. nóv. 2024 Almennar fréttir

Af hverju stappa börn niður fótunum?

Alþjóðlegur dagur barnsins er í dag á 35 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. SOS Barnaþorpin ýttu í dag úr vör herferð með þeim tilgangi að útvega börnum þann vettvang sem þau eiga rétt á til...

Börnin í Líbanon heil á húfi
16. okt. 2024 Almennar fréttir

Börnin í Líbanon heil á húfi

SOS Barnaþorpin í Líbanon hafa staðfest að öll börn og ungmenni á framfæri samtakanna í landinu eru heil á húfi. Stríðsástandið í landinu hefur þó áhrif á börnin sem áfram er hlúð vel að.