Er valkrafa frá SOS Barnaþorpunum í heimabankanum þínum?

SOS Barnaþorpin veita munaðarlausum og yfirgefnum börnum staðgengil fyrir þá fjölskyldu sem þau hafa misst og treysta um 70 þúsund börn og ungmenni víða um heim alfarið á samtökin okkar. Samtökin standa líka fyrir neyðar- og mannúðaraðstoð í þágu barna um allan heim.
Valkröfur liður í fjáröflun
Starfsemi SOS Barnaþorpanna á Íslandi felst í því að afla fjárstuðnings fyrir þessa hjálparstarfsemi og byggir innkoma samtakanna hér á landi að langstærstum hluta á einstaklingsframlögum. Liður í þeirri fjáröflun er að senda valkröfur í heimabanka til almennings og fyrirtækja. Valgreiðslur eru hugsaðar fyrir félög sem eru ekki rekin í hagnaðarskyni. Tilgangur þeirra er fyrst og fremst að gera innheimtu frjálsra fjárframlaga auðveldari.
Eyða valkröfum eða koma í veg fyrir þær
Eins og nafnið gefur til kynna er um að ræða valgreiðslur sem engum ber skylda að greiða og bera þær hvorki dráttarvexti né annan kostnað. Valgreiðslur má þekkja á því að í netbönkum er hægt að eyða þeim eða fela. Blæbrigðamunur er á framsetningu valgreiðslna á milli banka.
Ef þú vilt ekki fá valkröfur
Ef þú kærir þig ekki um að fá valkröfur getur þú skráð þig á bannskrá í þjóðskrá. Þá kemur þú ekki fram á úrtakslistum sem notaðir eru í markaðssetningarskyni. Þetta er einfalt að gera á vef Þjóðskrár sem þú skráir þig inn á með rafrænum skilríkjum. Skráning á bannskrá þýðir einnig að þú færð ekki senda markpósta.
Nánar er fjallað um valkröfur á vefsíðu Landsbankans.
Takk fyrir stuðninginn
SOS Barnaþorpin á Íslandi þakka af öllu hjarta þeim þúsundum Íslendinga sem árlega leggja samtökunum lið með valgreiðslum.
Nýlegar fréttir

Tæland: Börn og starfsfólk óhult
Öll börn og starfsfólk SOS Barnaþorpanna í Tælandi eru heil á húfi eftir stóra jarðskjálftann sem reið yfir landið og nágrannalönd í gær.

Utanríkisráðherra gerði rammasamning við SOS
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra skrifaði á mánudaginn undir rammasamning við SOS Barnaþorpin til fjögurra ára. Framlög ráðuneytisins til SOS á þessu tímabili nema samtals 689 milljónu...