Tugir þúsunda barna á Gaza hafa misst annað eða báða foreldra sína í stríðinu sem stendur þar yfir. Neyðin á Gaza er nú orðin slík að ljóst er að efla þarf starfsemi SOS Barnaþorpanna í Palestínu til lengri tíma. Með því að gerast SOS-foreldri barna á Gaza gerist þú mánaðarlegur styrktaraðili SOS barnaþorpsins í Rafah.
Þegar þú gerist SOS-foreldri barna á Gaza færðu tvö upplýsingabréf á næstu 6 mánuðum í tölvupósti frá okkur um ástandið í barnaþorpinu í Rafah. Þegar aðstæður leyfa hjá SOS í Palestínu færðu svo tvö bréf á ári frá Rafah með upplýsingum um lífið í barnaþorpinu.
SOS-foreldri barna á Gaza
SOS-foreldri barna á Gaza
Sem SOS-foreldri barna á Gaza styrkir þú SOS barnaþorpið í Rafah á Gaza í Palestínu með mánaðarlegu framlagi sem nemur 4.500 krónum. Framlagi þínu er varið í daglegan rekstur þorpsins svo tryggja megi öryggi og velferð þeirra barna sem þar búa og fer þeim nú fjölgandi. Einnig er hægt að greiða stakt framlag í neyðarsöfnun SOS.