Fréttayfirlit 26. febrúar 2024

Bersýnilegur árangur af íslensku verkefni fyrir þolendur í Tógó

Bersýnilegur árangur af íslensku verkefni fyrir þolendur í Tógó

Bersýnilegur árangur hefur náðst í íslensku verkefni gegn kynferðislegri misnotkun á börnum í Tógó. Verk­efn­ið hef­ur náð til 257 stúlkna sem eru þo­lend­ur kyn­ferð­is­brota, skilað fjölgun á slíkum málum á borði lögreglu og eflt fræðslu til kennara, nemenda og almennings.

Árið 2019 gerðu SOS Barna­þorp­in á Ís­landi samn­ing við utanríkisráðu­neyt­ið um fjár­mögn­un þró­un­ar­verk­efn­is í Ogou-hér­aði í Tógó. Verk­efn­ið sem framlengt var út árið 2025 mið­ar að því að styðja barna­fjöl­skyld­ur og sam­fé­lag­ið í for­vörn­um gegn kyn­ferð­is­legri misneyt­ingu á börn­um, einkum stúlk­um. Verk­efn­ið fel­ur í sér fyr­ir­byggj­andi að­gerð­ir, stuðn­ing og umönn­un barna og stúlkna sem hafa orð­ið fyr­ir slíku of­beldi með áherslu á að halda ung­um stúlk­um í skóla.

Verk­efn­is­svæð­ið er Ogou-hér­að norð­ur af Lomé, höf­uð­borg Tógó. Fjögur SOS barnaþorp eru í Tógó og á framfæri þeirra eru tæplega 500 börn og ungmenni. Verk­efn­is­svæð­ið er Ogou-hér­að norð­ur af Lomé, höf­uð­borg Tógó. Fjögur SOS barnaþorp eru í Tógó og á framfæri þeirra eru tæplega 500 börn og ungmenni.

Stúlkurnar hrekjast úr skóla

Kynferðisleg misnotkun á barnungum stúlkum er mikill vágestur sem herjað hefur í áraraðir á Ogou hérað. Sam­fé­lags­leg gildi gera það að verk­um að kyn­ferð­is­leg misneyt­ing á börn­um, barnagift­ing­ar stúlkna og brott­fall ung­lings­stúlkna úr grunn­skól­um vegna þung­un­ar eru að­kallandi vanda­mál á svæðinu.

Vilja ekki kæra nágranna

„Það er oft brugðist við þessum málum með of mikilli mildi. Flestar kærur falla niður af þeirri einföldu ástæðu að foreldrarnir vilja ekki fylgja kærunni eftir. Afríkubúar eru félagslyndir og nágrannarnir eru þeim mikilvægir. Þannig að þegar nágranni gerist brotlegur er svo erfitt að kæra hann, fara í gegnum ferlið og koma lögum yfir hann. Þetta er okkar helsta áskorun við að fást við vandamálið,“ segir starfsmaður barnaverndar í Ogou héraði.

Þessi unga stúlka heitir Akouwa og er þolandi kynferðisbrots í Ogou. Hún situr eftir með afleiðingarnar og þarf að takast á við lífið með ungabarn í fanginu, 17 ára og full af framtíðardraumum. Þessi unga stúlka heitir Akouwa og er þolandi kynferðisbrots í Ogou. Hún situr eftir með afleiðingarnar og þarf að takast á við lífið með ungabarn í fanginu, 17 ára og full af framtíðardraumum.

Verkefnið skilar góðum árangri

Mikill og góður árangur hefur náðst í þessu verkefni til góða fyrir þolendur. Verkefnið hefur náð til 257 stúlkna sem eru þolendur kynferðisbrota. 208 þeirra voru við það að hætta í skóla en héldu þess í stað áfram og 30 fóru í starfsnám. Fræðsla hefur líka náð til 175 kennara í öllum tíu skólum svæðisins og 16.587 barna og ungmenna í samfélaginu. Meðal almennings hefur verkefnið náð til yfir 40 þúsund manns. Árangurinn er bersýnilegur.

Brottfall úr skóla er algeng afleiðing fyrir þessar stúlkur og þá skortir oft stuðning sem þær hafa nú fengið í gegnum verkefnið svo þær geti snúið aftur til náms en um leið hugsað um börnin sín.

Varð móðir 13 ára og hraktist úr skóla

Írena var aðeins nýorðin 13 ára þegar hún varð ólétt eftir nauðgun. Allt í einu voru framtíðardraumar þessarar ungu stúlku í uppnámi. Hún var komin með ungabarn í fangið áður en hún varð 14 ára og svo fór að hún hraktist úr grunnskólanámi af þessum völdum.

Lestu sögu Írenu hér.

Heimildamynd um verkefnið

Í þessari heimildamynd er rætt við Írenu og fleiri unglingsstúlkur á verkefnasvæði okkar í Tógó sem sjálfar á barnsaldri urðu óléttar eftir nauðgun og fjallað um afleiðingarnar sem það hafði fyrir þær.

Nýlegar fréttir

Ingibjörg og Anna Bjarney kjörnar í stjórn SOS
15. maí 2024 Almennar fréttir

Ingibjörg og Anna Bjarney kjörnar í stjórn SOS

Aðalfundur SOS Barnaþorpanna á Íslandi var haldinn mánudaginn 13. maí og urðu þá breytingar á stjórn samtakanna. Ingibjörg E. Garðarsdóttir og Anna Bjarney Sigurðardóttir voru kjörnar í stjórnina til ...

SOS eru einu samtökin eftir á Gaza sem taka að sér fylgdarlaus börn
14. maí 2024 Almennar fréttir

SOS eru einu samtökin eftir á Gaza sem taka að sér fylgdarlaus börn

Ástandið á Gaza er sérstaklega viðkvæmt núna og SOS Barnaþorpin eru einu hjálparsamtökin eftir á svæðinu sem taka að sér fylgdarlaus börn. Þessi frétt er uppfærð reglulega með nýjustu fréttum frá SOS ...