Fréttayfirlit 10. desember 2022

Desember-fréttablað SOS komið út

Desember-fréttablað SOS komið út

Seinna SOS-fréttablað ársins kom út nú í desember og hefur því verið dreift til styrktararaðila. Blaðið má einnig nálgast rafrænt í pdf skjali á sos.is. Forsíðuviðtalið að þessu sinni er við Ingibjörgu Steingrímsdóttur og fyrrverandi styrktarbarn hennar, konu að nafni Sonam sem býr á Indlandi.

Ingibjörg gerðist SOS-foreldri Sonam þegar hún var lítil stúlka árið 1989 og styrkti hana svo til framhaldsnáms. Það tækifæri lét Sonam ekki fara til spillis og menntaði sig til kennara og í dag starfar hún í menntamálaráðuneyti Tíbet á Indlandi. Sonam segir að án Ingibjargar væri hún ekki á þessum stað í lífinu í dag.

Með Sonam og Ingibjörgu bundust órjúfanleg vinabönd og fór Ingibjörg í heimsókn til Sonam árið 2008. Þrettán árum síðar fékk Ingibjörg óvænt símtal frá Sonam sem vildi færa henni gleðifréttir. Við höfðum upp á Sonam og fengum hana til að svara nokkrum spurningum fyrir fréttablað SOS.

Lesa greinina: Úr fátækt til frama

Ragnar Schram, framkvæmdastjóri SOS á Íslandi, hitti fjölskyldu sem skammaðist sín vegna fátæktar og lokaði sig af. Nú hefur líf fjölskyldunnar gjörbreyst til hins betra. Ragnar Schram, framkvæmdastjóri SOS á Íslandi, hitti fjölskyldu sem skammaðist sín vegna fátæktar og lokaði sig af. Nú hefur líf fjölskyldunnar gjörbreyst til hins betra.

Gjörbreytt líf fjölskyldu í Rúanda

Í blaðinu er einnig frásögn framkvæmdastjóra SOS á Íslandi af heimsókn hans til Rúanda þar sem ný fjölskylduefling var að hefjast sem fjármögnuð er af Íslendingum. Þar hitti hann fjölskyldu sem er nýútskrifuð úr sambærilegu verkefni og hefur líf hennar gjörbreyst til hins betra.

Frásagnir barna í neyð

Í blaðinu eru einnig viðtal við sálfræðing hjá SOS í Úkraínu sem endurheimti 12 ára dreng úr áfalli vegna stríðsins. Ung stúlka í Kenía lýsir því hvernig þurrkarnir í Austur Afríku ógna lífi fjölskyldu hennar og framkvæmdastýra SOS Barnaþorpanna í Pakistan lýsir hræðilegu ástandi í landinu vegna flóða. Þá er einnig viðtal við unga stúlku í Tógó sem varð ólétt eftir nauðgun og hrökklaðist úr skóla.

Sjá öll fréttablöð SOS Barnaþorpanna á Íslandi

Nýlegar fréttir

Ingibjörg og Anna Bjarney kjörnar í stjórn SOS
15. maí 2024 Almennar fréttir

Ingibjörg og Anna Bjarney kjörnar í stjórn SOS

Aðalfundur SOS Barnaþorpanna á Íslandi var haldinn mánudaginn 13. maí og urðu þá breytingar á stjórn samtakanna. Ingibjörg E. Garðarsdóttir og Anna Bjarney Sigurðardóttir voru kjörnar í stjórnina til ...

SOS eru einu samtökin eftir á Gaza sem taka að sér fylgdarlaus börn
14. maí 2024 Almennar fréttir

SOS eru einu samtökin eftir á Gaza sem taka að sér fylgdarlaus börn

Ástandið á Gaza er sérstaklega viðkvæmt núna og SOS Barnaþorpin eru einu hjálparsamtökin eftir á svæðinu sem taka að sér fylgdarlaus börn. Þessi frétt er uppfærð reglulega með nýjustu fréttum frá SOS ...