Fréttayfirlit 15. nóvember 2019

Rakel Lind ráðin fjármála- og fjáröflunarstjóri SOS

Rakel Lind Hauksdóttir hefur verið ráðin fjármála- og fjáröflunarstjóri SOS Barnaþorpanna á Íslandi. Rakel er fædd árið 1982, hún er viðskiptafræðingur að mennt og lýkur ML-prófi í lögfræði um áramótin. Hún hefur starfað hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (LSR) frá árinu 2007, nú síðast sem aðstoðarmaður framkvæmdastjóra og sérfræðingur á fjárreiðusviði. Rakel hefur einnig starfað fyrir endurskoðunarnefnd LSR og á réttindasviði sjóðsins.

Það er afar ánægjulegt að bætast í hóp starfsmanna SOS Barnaþorpanna á Íslandi og fá tækifæri til þess að taka þátt í því öfluga starfi sem þar er unnið. Ég er spennt að koma til starfa og hlakka til að takast á við þau fjölbreyttu verkefni sem bíða mín þar,“ segir Rakel.

26 umsóknir bárust um starfið frá mörgum mjög frambærilegum einstaklingum sem erfitt var að velja úr og þakka SOS Barnaþorpin öllum sem sýndu áhuga. Rakel hefur störf hjá okkur á nýju ári og tekur þá við af Þorsteini Arnórssyni sem skiptir um starfsvettvang.

Nýlegar fréttir

Ingibjörg og Anna Bjarney kjörnar í stjórn SOS
15. maí 2024 Almennar fréttir

Ingibjörg og Anna Bjarney kjörnar í stjórn SOS

Aðalfundur SOS Barnaþorpanna á Íslandi var haldinn mánudaginn 13. maí og urðu þá breytingar á stjórn samtakanna. Ingibjörg E. Garðarsdóttir og Anna Bjarney Sigurðardóttir voru kjörnar í stjórnina til ...

SOS eru einu samtökin eftir á Gaza sem taka að sér fylgdarlaus börn
14. maí 2024 Almennar fréttir

SOS eru einu samtökin eftir á Gaza sem taka að sér fylgdarlaus börn

Ástandið á Gaza er sérstaklega viðkvæmt núna og SOS Barnaþorpin eru einu hjálparsamtökin eftir á svæðinu sem taka að sér fylgdarlaus börn. Þessi frétt er uppfærð reglulega með nýjustu fréttum frá SOS ...