Fréttayfirlit 6. desember 2019

Rúrik og 66°Norður hanna bol til styrktar SOS Barnaþorpunum

Í dag kemur í verslanir 66°Norður bolur sem hannaður var í samstarfi við velgjörðarsendiherra SOS Barnaþorpanna, Rúrik Gíslason. Allur ágóði af sölu bolsins mun renna til SOS Barnaþorpanna. Bolurinn er einnig til sölu í vefverslun 66°Norður.

SOS bolur RúriksÁnægjulegt að sjá þessa hugmynd verða að veruleika

„SOS Barnaþorpin á Íslandi vinna frábært starf og ég er svo heppinn að fá að styðja við þeirra öfluga starf. Þegar ég gerðist velgjörðarsendiherra fór ég strax að hugsa hvað ég gæti gert til að vekja athygli á samtökunum og hvernig hægt væri að styðja þau fjárhagslega. Þar sem ég hef mikinn áhuga á tísku datt mér í hug að það væri gaman að hanna bol og selja til styrktar samtökunum. Ég vissi að þetta yrði flókið ferli og sá að ég væri ekki að fara að gera þetta  einn. Ég hafði því samband við 66°Norður sem tóku mjög vel í hugmyndina og vildu hjálpa mér að framleiða bolinn. Markmiðin voru skýr við vildum að sjálfsögðu hanna flottan og vandaðan bol sem fólk myndi vera stolt að klæðast í. Það er virkilega ánægjulegt að sjá þessa hugmynd verða að veruleika og það líka á þessum árstíma, rétt fyrir jólin,“  segir Rúrik Gíslason.

Í anda 66°Norður

„Þetta verkefni er alveg í anda 66°Norður og ánægjulegt að vinna að því með Rúrik og fulltrúum SOS barnaþorpa. Í þessari vegferð höfum við fengið að læra um þeirra frábæra starf en auk barnaþorpanna þá reka samtökin fjölda leikskóla, grunnskóla, verknámsskóla og heilsugæslustöðva auk þess að sinna neyðaraðstoð. Það er ánægjulegt að geta lagt þeirra góða starfi lið á þennan hátt, “ segir Fannar Páll Aðalsteinsson, markaðsstjóri 66°Norður. 

Yfirlýsing um vilja til að gera heiminn betri

„SOS Barnaþorpin á Íslandi fagna samstarfinu við Rúrik og 66°Norður og erum mjög þakklát enda ljóst að sala á bolnum mun hjálpa okkur að bæta líf barna sem mest þurfa á hjálp að halda. Við erum afar sátt við útkomuna og ljóst að fjöldi fólks hefur lagt metnað sinn í hönnun og framleiðslu á bolnum. Á þeim 70 árum sem samtökin hafa hjálpað börnum hafa samtökin haft jákvæð áhrif á um 13 milljónir einstaklinga um allan heim. Bolurinn er ekki bara vandaður og flottur, heldur er hann yfirlýsing þess sem honum klæðist að viðkomandi vilji gera heiminn betri fyrir munaðarlaus og yfirgefin börn,“ segir Ragnar Schram, framkvæmdastjóri SOS barnaþorpanna á Íslandi.

Nýlegar fréttir

Ingibjörg og Anna Bjarney kjörnar í stjórn SOS
15. maí 2024 Almennar fréttir

Ingibjörg og Anna Bjarney kjörnar í stjórn SOS

Aðalfundur SOS Barnaþorpanna á Íslandi var haldinn mánudaginn 13. maí og urðu þá breytingar á stjórn samtakanna. Ingibjörg E. Garðarsdóttir og Anna Bjarney Sigurðardóttir voru kjörnar í stjórnina til ...

SOS eru einu samtökin eftir á Gaza sem taka að sér fylgdarlaus börn
14. maí 2024 Almennar fréttir

SOS eru einu samtökin eftir á Gaza sem taka að sér fylgdarlaus börn

Ástandið á Gaza er sérstaklega viðkvæmt núna og SOS Barnaþorpin eru einu hjálparsamtökin eftir á svæðinu sem taka að sér fylgdarlaus börn. Þessi frétt er uppfærð reglulega með nýjustu fréttum frá SOS ...