Fréttayfirlit 31. ágúst 2018

Skóli í Aleppó opnaður á ný eftir aðstoð Íslendinga

Skóli í Aleppó opnaður á ný eftir aðstoð Íslendinga

Þau gleðitíðindi bárust okkur í vikunni að búið væri að opna á ný Al Thawra grunnskólann í Aleppó í Sýrlandi sem endurbyggður var fyrir fjármagn frá íslenskum styrktaraðilum. Kostnaður við endurbygginguna var um 12 milljónir króna og var hann fjármagnaður af SOS Barnaþorpunum á Íslandi með dyggum stuðningi einstaklinga hér á landi sem lögðu verkefninu lið með frjálsum framlögum.

Yfir 500 börn snúa aftur til náms

Skólinn er í hverfinu Alsukkari en þangað hafa barnafjölskyldur flutt aftur eftir langan tíma á flótta í því hörmungarástandi sem þar hefur verið. Yfir 500 börn eru nú að hefja nám í skólanum sem er öllum börnum opinn, burtséð frá uppruna þeirra, trú eða afstöðu foreldra í stríðinu. Talið er að 50% barna á aldrinum 5-18 ára í austurhluta Aleppó hafi ekki stundað skólagöngu vegna stríðsástandsins.

Margir skólar hafa verið notaðir sem fangelsi eða skýli og sumir eru hreinlega orðnir að rústum. Ástandið er orðið stöðugra á sumum svæðum í Sýrlandi og yfirvöld vilja byggja samfélagið upp á ný. Tilþrifamikið er að sjá andstæðurnar í nýrri mynd af skólanum eftir endurbygginguna en þar má glöggt sjá í bakgrunni eyðilegginguna í nágrenninu.

Gáfu eina milljón og hálfa milljón

Meðal einstaklinga á Íslandi sem studdu við verkefnið var ónefndur einstaklingur sem gaf eina milljón króna og framlag upp á hálfa milljón króna kom úr minningarsjóði Sigurðar Jónssonar sem lést árið 2015, aðeins 43 ára að aldri. Sigurði þótti afar vænt um börn og sérstaklega þau sem áttu erfitt uppdráttar og því vildu aðstandendur hans leggja þessu verkefni lið.

SOS Barnaþorpin, bæði á Íslandi og í Sýrlandi, vilja koma á framfæri kærum þökkum til allra styrktaraðila fyrir framlögin.

Nýlegar fréttir

Ingibjörg og Anna Bjarney kjörnar í stjórn SOS
15. maí 2024 Almennar fréttir

Ingibjörg og Anna Bjarney kjörnar í stjórn SOS

Aðalfundur SOS Barnaþorpanna á Íslandi var haldinn mánudaginn 13. maí og urðu þá breytingar á stjórn samtakanna. Ingibjörg E. Garðarsdóttir og Anna Bjarney Sigurðardóttir voru kjörnar í stjórnina til ...

SOS eru einu samtökin eftir á Gaza sem taka að sér fylgdarlaus börn
14. maí 2024 Almennar fréttir

SOS eru einu samtökin eftir á Gaza sem taka að sér fylgdarlaus börn

Ástandið á Gaza er sérstaklega viðkvæmt núna og SOS Barnaþorpin eru einu hjálparsamtökin eftir á svæðinu sem taka að sér fylgdarlaus börn. Þessi frétt er uppfærð reglulega með nýjustu fréttum frá SOS ...