Fréttayfirlit 22. september 2020

SOS Barnaþorpin í samstarf við Bayern München

Þýska knattspyrnustórveldið Bayern München ætlar að tefla fram stórstjörnum sínum og aðstöðu félagsins fyrir samfélagsverkefni sem gengur út á að draga fram hugrekki og falda hæfileika barna af ólíkum uppruna. Bayern München og barnahjálparsamtökin SOS Barnaþorpin kynntu í dag samstarfsverkefnið þess efnis.

Fræðsluverkefnið „Leikvangur breytinga," eða "Arena of change", gengur út á að kalla fram hugrekki barna af ólíkum uppruna og báðum kynjum til að þróa hæfileika sína, ekki aðeins á sviði íþrótta heldur líka lista og vísinda m.a. Börnin munu ekki aðeins læra hvert af öðru. Leikmenn Evrópumeistaraliðs Bayern auk ungra framtíðarstjarna félagsins munu gegna hlutverki fyrirmynda og leiðbeinenda fyrir þátttakendur.

Á fyrsta stigi verkefnisins koma 60 börn á aldrinum 8-14 ára saman úr fimm skólum í München og spila fótbolta á æfingasvæði Bayern. Út frá fótboltaiðkuninni munu börnin fást við margþætt frammistöðumiðuð verkefni með það að leiðarljósi að efla framtíðarmöguleika þeirra. Áhersla verður lögð á að draga fram hugrekki barnanna án þess að leggja á þau þrýsting eða samkeppni milli þeirra.

Karl-Heinz Rummenigge, stjórnarformaður FC Bayern, segir að markmið félagsins sé að taka þátt í þróun á samfélagslegri sjálfbærni og þetta samstarf sé félaginu afar mikilvægt til að gera það sýnilegra og áhrifaríkara. „SOS Barnaþorpin eru fremst á sviði alþjóðlegra hjálparsamtaka og eiga því fullkomna samleið með FC Bayern," segir Rummenigge í fréttatilkynningu um verkefnið.

SOS Barnaþorpin hafa í 70 ár einblínt á börn án foreldraumsjár og starfa í 137 löndum en starf samtakanna er sérstaklega þekkt og virt meðal almennings í Þýskalandi.

Petra Horn, stjórnarmeðlimur hjá SOS Childrens Villages International og Rummenigge skrifuðu undir samstarfssamninginn.

Nýlegar fréttir

Ingibjörg og Anna Bjarney kjörnar í stjórn SOS
15. maí 2024 Almennar fréttir

Ingibjörg og Anna Bjarney kjörnar í stjórn SOS

Aðalfundur SOS Barnaþorpanna á Íslandi var haldinn mánudaginn 13. maí og urðu þá breytingar á stjórn samtakanna. Ingibjörg E. Garðarsdóttir og Anna Bjarney Sigurðardóttir voru kjörnar í stjórnina til ...

SOS eru einu samtökin eftir á Gaza sem taka að sér fylgdarlaus börn
14. maí 2024 Almennar fréttir

SOS eru einu samtökin eftir á Gaza sem taka að sér fylgdarlaus börn

Ástandið á Gaza er sérstaklega viðkvæmt núna og SOS Barnaþorpin eru einu hjálparsamtökin eftir á svæðinu sem taka að sér fylgdarlaus börn. Þessi frétt er uppfærð reglulega með nýjustu fréttum frá SOS ...