Fréttayfirlit 2. október 2019

Fjölskyldueflingin í Eþíópíu innspýting í samfélagið

Fjölskyldueflingin í Eþíópíu innspýting í samfélagið

Það er ánægjulegt að geta nú deilt með SOS-fjölskylduvinum nýjustu fréttum af Tulu Moye -fjölskyldueflingunni í Eþíópíu. Í árangursskýrslu fyrir fyrri helming þessa árs sem okkur var að berast segir að verkefnið hafi bætt lífsgæði fólksins á þessu svæði og átt þú sem SOS-fjölskylduvinur stóran þátt í því.

Tölvukennsla á rafmagnslausum svæðum

Á þeim skamma tíma síðan verkefnið hófst, 1. janúar 2018, hefur skólasókn barnanna aukist og þau tekið miklum framförum í námi sínu. Skólarnir hafa fengið betri tækjabúnað og námsgögn og kennarar meiri þjálfun. Allt tryggir þetta börnunum gæðamenntun auk þess sem fræðsla var sett á um jafnrétti kynjanna. Þá hafa kaup á rafstöð gert tölvukennslu mögulega á rafmagnslausum svæðum.

Frá einum af skólunum í Iteya. Frá einum af skólunum í Iteya.

Hjálpað að skapa tekjur

Liður í að stýra fjölskyldunum í átt að sjálfbærni er ráðgjöf af ýmsu tagi og veiting lána á lágum vöxtum. Foreldrar sóttu námskeið og lærðu að ákveða hvernig atvinnurekstur hentar þeim til tekjuöflunar. Til að auðvelda tekjuöflun var fest kaup á bökunartæki sem fólkið hefur aðgang að. Þá voru 28 nautgripir gefnir jafnmörgum fjölskyldum til ræktunar.
Jákvæði áhrif á samfélagið

Það er mat umsjónarmanna verkefnisins að Fjölskyldueflingin hafi haft verulega góð áhrif á þessar fjölskyldur. Þá hefur verkefninu verið hrósað í hástert af almenningi á svæðinu og ljóst er að vel er tekið eftir þeim jákvæðu áhrifum sem verkefnið hefur á samfélagið. 

Í samvinnu við Utanríkisráðuneytið gerir SOS á Íslandi árlega úttekt á vettvangi. Fjölskyldueflingin er nefnd eftir eldfjallinu Tulu Moye sem er mitt á milli Eteya og Teromoye. Fjallið má einmitt sjá á myndinni hér að neðan en fyrir framan það standa Ragnar Schram, framkvæmdastjóri SOS á Íslandi, og Hans Steinar Bjarnason, upplýsingafulltrúi, í góðum hópi starfsfólks SOS í Eþíópíu.

Verkefnið er nefnt eftir eldfjallinu Tullu Moye sem er mitt á milli Iteya og Teromye. Verkefnið er nefnt eftir eldfjallinu Tullu Moye sem er mitt á milli Iteya og Teromye.

800 krónur framfleyta fjölskyldunni

Fyrr á árinu hittum við nokkrar af þessum fjölskyldum í Fjölskyldueflingunni og tókum við þau viðtöl sem sjá má hér á heimasíðu okkar. Þar er m.a. nýbirt viðtal við Zamzan sem býr ásamt eiginmanni og þremur börnum í hrörlegu litlu húsi í hinum afskekkta bæ Teromoye. Saga hennar undirstrikar hvað lítil framlög frá Íslandi geta gert mikið fyrir þessar barnafjölskyldur.

Nýlegar fréttir

Ingibjörg og Anna Bjarney kjörnar í stjórn SOS
15. maí 2024 Almennar fréttir

Ingibjörg og Anna Bjarney kjörnar í stjórn SOS

Aðalfundur SOS Barnaþorpanna á Íslandi var haldinn mánudaginn 13. maí og urðu þá breytingar á stjórn samtakanna. Ingibjörg E. Garðarsdóttir og Anna Bjarney Sigurðardóttir voru kjörnar í stjórnina til ...

SOS eru einu samtökin eftir á Gaza sem taka að sér fylgdarlaus börn
14. maí 2024 Almennar fréttir

SOS eru einu samtökin eftir á Gaza sem taka að sér fylgdarlaus börn

Ástandið á Gaza er sérstaklega viðkvæmt núna og SOS Barnaþorpin eru einu hjálparsamtökin eftir á svæðinu sem taka að sér fylgdarlaus börn. Þessi frétt er uppfærð reglulega með nýjustu fréttum frá SOS ...