Fréttayfirlit 10. október 2023

21.772 Íslendingar fengu skattaafslátt vegna framlaga til SOS

21.772 Íslendingar fengu skattaafslátt vegna framlaga til SOS

Hátt í 96.000 einstaklingar studdu við almannaheillastarfsemi á Íslandi á síðasta ári og fengu endurgreiðslu frá Skattinum. 22% þeirra styrktu SOS Barnaþorpin eða alls 21.772 manns um rúmar 585 milljónir króna.

Lög um skattalega hvata til almannaheillastarfsemi tóku gildi á síðari hluta ársins 2021 og var árið 2022 því fyrsta heila árið sem þau giltu. Lögin fela í sér að einstaklingar geta dregið allt að 350 þúsund krónur á ári frá skattskyldum tekjum sínum utan atvinnurekstrar vegna framlaga til almannaheillastarfsemi.

3.900 kr. verða 2.400 kr.

SOS-foreldrar sem greiða 3.900 krónur á mánuði lækka skattstofn sinn um 46.800 krón­ur á ári. Eftir því sem styrkupphæðin er hærri, því hærri verður endurgreiðslan. Upphæð skattafrádráttarins er mismunandi eftir skattþrepum viðkomandi styrktaraðila en algengt dæmi útreiknast þannig að SOS-foreldrar fá um 18.000 krónur endurgreiddar frá Skattinum. Eftir endurgreiðsluna má því námunda að mánaðarleg greiðsla SOS-foreldra nemi í raun um 2.400 krónum í stað 3.900 króna.

6,6 milljarðar til almannaheillafélaga

Alls drógu einstaklingar um 4,8 milljarða króna frá tekjuskattsstofni sínum í fyrra vegna slíkra framlaga en í heild námu framlög einstaklinga til almannaheillafélaga 6,6 milljörðum króna.

  • Ein­stak­ling­ur get­ur feng­ið skatt­frá­drátt (lækk­un á tekju­skatts­skatt­stofni) allt að 350 þús­und krón­um á ári.
  • Sam­an­lagt geta hjón eða sam­búð­ar­fólk því lækk­að skatt­stofn­inn sinn um 700 þús­und krón­ur.
  • Sem styrktarað­ili SOS Barna­þorp­anna þarftu ekk­ert að að­haf­ast til að fá þessa end­ur­greiðslu því fram­lög þín eru for­skráð á skatt­fram­tal­ið þitt.

Sjá nánar á vef Stjórnarráðsins

Sjá einnig: Styrktarað­il­ar SOS fá end­ur­greitt frá Skatt­in­um

SOS foreldri

Vertu SOS foreldri

SOS foreldri

SOS-foreldri framfleytir barni sem áður var umkomulaust og tryggir því fjölskyldu á góðu heimili. Barnið fær menntun og öllum grunnþörfum sínum mætt. Þú færð reglulega fréttir og myndir af SOS-barninu þínu.

Þegar þú velur að styrkja „öll börn“ styrkirðu öll börnin í einu SOS barnaþorpi og færð almennar fréttir úr tilteknu barnaþorpi.

Mán­að­ar­legt fram­lag
Styrkja eitt barn 3.900 kr á mánuði Styrkja tvö börn 7.800 kr á mánuði Öll börn fyrir 4.500 kr á mánuði